Ýmislegt
Kæri gestur, vertu velkominn.
Á þessum hluta
síðunnar mun ég veita nánari upplýsingar um ýmislegt sem viðkemur minni
starfsemi.
I. Hnakkakynningar
Eins og fram hefur komið á þessari síðu hef ég boðið upp
á svokallaðar hnakkakynningar
og hefur fólk víðs vegar um landið nýtt sér þessa
þjónustu.

Góður hnakkur sem endist vel er töluverð
fjárfesting og því er það mikilvægt
að hafa tækifæri til að geta prófað
mismunandi gerðir hnakka á hesti áður en ákvörðun er tekin. Maður þarf
sjálfur að “fíla” hnakkinn og það getur
aðeins maður sjálfur sagt til um eftir
að hafa prófað. Einnig er fróðlegt
að fá útskýringar á nokkrum
grundvallaratriðum um hnakkasmíði, m.a. mikilvægi
virkisins.
Hnakkakynningar-þjónustan kemur til með að standa hestamönnum til boða
eins og áður.
Hafir þú eða hestamannafélag þitt
áhuga á slíku, vinsamlegast látið mig
þá vita
sem fyrst
vegna nauðsynlegrar skipulagningar.
Þú getur pantað hnakkakynningu í síma
437 1793 / 863 6895
eða með því að ýta á takkann hér fyrir neðan.
II.
Umhirða:
Einfalt, þú átt að þrífa og bera
á reiðtygin þín, sérstaklega hnakkinn !
Miðað við þá notkun sem er á
reiðtygjum á Tamningastöðinni hjá mér
nægir að gera þetta einu sinni í
mánuði við hvern hnakk.
Þvoðu
leðrið með sápu, skolaðu létt og
áður en leðrið þornar, skaltu bera
leðurfeiti í klút yfir.
Þau efni sem ég mæli
helst með heita Hamanol – sápa og áburður.