Söluhestar

Hér verða boðin til sölu hross sem hlotið hafa ákv. gæðastimpil frá minni hendi. 
Þau verða ekki mörg, þar sem hestasala er aðeins lítill hluti af minni starfsemi.

Söluhrossin hef ég og mitt aðstoðarfólk tamið og þjálfað eftir því tamningar- og þjálfunarferli sem ég hef að leiðarljósi og hægt er að kynna
sér í myndböndunum "Frumtamning" og "Þjálfun". Markmiðið er að þeir sem eru að leita að vel þjálfuðum og uppbyggðum hrossum til kaups þurfi
ekki að velkjast í vafa um bakgrunn hestsins eða kunnáttu, heldur geti gengið að ákv. hlutum vísum. Erlendum hestakaupmönnum býðst einnig að senda
til mín þau hross sem þeir hafa keypt og munu þau þá fara í gegnum Benni´s Harmony tamningar- og þjálfunarferlið.
Þetta ferli eykur traust milli manns og hest, gerir hestinn jákvæðan fyrir öllum ábendingum, hann skilur og samþykkir.
Það auðveldar í flestum tilfellum nýjum eiganda að taka við hestinum.


Blika frá Eyri - Söluhross

Til að fá upplýsingar um söluhross er áhugasömum bent á
heimasíðu Hrossaræktarbúsins Eyri, sem er á vegum Benna Líndals.
Síðuna má finna á slóðinni www.eyri.ehf.is