Kennslu-og
fræðslumyndir
Gaman að horfa á – Auðvelt að
skilja – Árangursríkt til eftirbreytni
Hvert myndband er fáanlegt á sænsku, ensku,
þýsku og íslensku.
DVD-diskarnir innihalda öll fjögur tungumálin.

"FRUMTAMNING"
Farið
er skref fyrir skref í tamningaferil sem spannar um 3
mánuði og lögð áhersla á að
sýna hlutina á faglegan og skýran hátt
þannig að sem flestir hafi gagn og gaman af.
Tamningaferillinn er byggður á áratuga reynslu og
faglegri þekkingu Benedikts og annarra.
Eðlisþarfir hestsins eru hafðar í huga og
maðurinn kemur með sinn þátt inn í
tamninguna út frá forsendum hestsins þannig að
hesturinn verður sáttari. Tamningaferillinn er
tiltölulega einfaldur og eitt leiðir til annars.
Hesturinn skilur og samþykkir það sem hann er að
læra og temst því hraðar og betur. Með
þessari leið má einnig komast hjá
átökum og vandamálum, sem yfirleitt orsakast vegna
misskilnings milli manns og hests, traust myndast og varanlegur
grunnur er lagður fyrir áframhaldandi þjálfun.
Lengd:
60 mín
VHS og DVD
Price: 4000 kr +
pökkun og póstburðargjald
![]()
"ÞJÁLFUN"
Í þessu myndbandi
opnar Benedikt Líndal dyrnar á tamningastöð
sinni og leyfir áhorfendum að fylgjast
með þjálfun nokkurra hrossa í u.þ.b. eitt
þjálfunartímabil.
Hann heldur áfram þar sem frá var horfið
í fyrra myndbandi sínu um frumtamningu og sýnir
hér áhorfendum ýmsar áhrifaríkar
leiðir sem hann notar í framhaldsþjálfun. M.a.
er komið inn á mikilvægi fjölbreyttra
vinnubragða, þjálfun gangtegunda, hvernig við
getum skapað jákvæða stemmningu til að
viðhalda vinnugleðinni og auka árangur, rétta
notkun stangaméla o.m.fl.
Með því
að byggja upp gagnkvæmt traust og virðingu og með
vinnubrögðum sem hesturinn skilur og samþykkir skapast
grundvöllur til að laða fram það besta í
hverjum einstökum hesti,
hvort heldur um er að ræða fjölskyldu eða
keppnishest.
Markmiðið með þjálfuninni er að hesturinn
verði vel taminn, þjáll og mjúkur,
léttur í beisli, næmur,
líkamlega sterkur og öruggur á mismunandi
gangi.
Lengd: 80 min
Bæði á VHS og DVD
Price: 4000 kr +
pökkun og póstburðargjald
![]()