Grunnur að góðri samvinnu
Hnakkur er
íþróttatæki sem gerðar eru miklar kröfur til.
Hann hefur
það erfiða hlutverk að tengja tvo ólíka líkama - knapans
og hestsins - þannig að úr verði ein samræmd heildarmynd.
Til að hanna slíkan grip svo vel sé þarf
þekkingu á líkamsbyggingu bæði
manns og
hests, þekkingu á grunneðli
hestsins og gangtegundum,
þekkingu og færni í smíði þess
besta sem hægt er að bjóða upp á í reiðtygjaframleiðslu
og leðurvinnu,
úrvalshráefni og fagmennsku á öllum þeim
sviðum sem koma þessu máli við.
Benni's Harmony
hnakkarnir eru afrakstur slíkrar samvinnu fagmanna
í
reiðmennsku og reiðtygjaframleiðslu.
