Benni's Harmony hnakkar

Benni´s Harmony eru hnakkar hannaðir af Benedikt Líndal, reiðkennara A og tamningameistara Félags Tamninganna.  Hinn heimsþekkti reiðtygjaframleiðandi Stübben í Sviss, sem er leiðandi í framleiðslu á hnökkum í hæðsta gæðaflokki er samstarfsaðili Benedikts og framleiðandi Benni´s Harmony reiðtygjanna.

    

Það sem gerir þessa hnakka sérstaka er að þeir eru hannaður með velferð hestsins í huga. 

Til að hestur geti lært og tekið framförum þarf honum að líða vel.  Lögun hnakkanna gefur knapanum frábært sæti sem  laðar fram góða ásetu. Sérstök vinna hefur og verið lögð í að gera sætið mjúkt og þægilegt fyrir knapann.

Virkið er uppistaða hnakksins.  Í hverjum Benni´s Harmony hnakk er sérhannað Stübben fjaðurvirki sem búið er til úr óbrjótanlegri efnablöndu og myndar opinn ramma með stálfjöðrum, spennt með breiðum hampböndum.

Virkið er sveigjanlegt bæði þversum og á ská og fjaðrar við hverja hreyfingu hestsins.  Knapinn situr í miðju hnakksins því aðeins þannig getur fjaðurvirki virkað rétt.  Stübben hnakkvirkið er með vissri tækni "forspennt", sem þýðir að tog og þrýstikraftur hafa góða samvirkni.  Við hreyfingu hestsins og þunga knapans myndast fjöðrun í virkinu.  Vegna sveigjanleikans í virkinu og þess  að dýpsti punktur er í miðjunni lagar hnakkurinn sig eftir baki hestsins og kemur þannig í veg fyrir að álagspunktar myndist.
Hnakkur getur aldrei orðið betri en virkið sem er inni í honum. Virkið er sál hnakksins.

  Móttök eru löng, gjarðarsylgjur eru fyrir neðan hnakklafið og knapinn er mjög nærri hestinum með lærin og kálfann.  Stutt gjörð, mjúk en níðsterk er notuð með hverjum hnakk.  Þegar hnakkurinn er girtur lendir gjörðin strax þar sem bolur hestsins er grennstur, þ.e. u.þ.b. handarbreidd fyrir aftan framfót. Þetta ásamt góðri þyngdardreifing knapans í hnakknum gerið það að verkum að hnakkurinn situr yfirleitt vel og það er engin hætta á að þrengt sé að öndunarfærum hestsins, sem gerist t.d  þegar girt er aftarlega.

Hnépúðar eru ofarlega undir hnakklöfum og gefa þægilegan stuðning við læri knapans, en hnéð sjálft er "frjálst". Undirdýnur eru fylltar með náttúrulegri ull og er bilið á milli þeirra það mikið að engin hætta er á núningi á hryggjarliði hestsins.

Sé gjörðin á réttum stað liggur einnig hnakkurinn rétt, sem er nálægt 2 - 4 fingurbreiddum fyrir aftan herðablað.  Bógur hestsins er þá frjáls og knapinn situr mjög nærri þyngdarpunkti hans.


Jakob Sigurðsson & Auður frá Lundum  /  Bjarni Jónasson og Komma frá Garði

Benni´s Harmony hnakkarnir fást nú í eftirtöldum gerðum:
Focus extra, Focus, Allround, Allround RS, Elegant, Elegant RS, Comfort II og Elegant Junior.

Fyrir velferð hestsins er sama hver hnakkurinn er valinn, því sama virkið er í þeim öllum, aðeins spennt á mismunandi hátt. 
Allar gerðir eiga jafnt við í tamningum, ferðalögum, keppni ofl.  Hér ræður einungis smekkur knapans.

Mögulegt er að fá Harmony hnakka í þremur stærðum (virkið misgleitt að framan).  Fyrir langflesta hesta er miðstærðin heppileg en fyrir hesta með sérstsklega rýrar herðar eða hesta sem eru mjög breiðir yfir herðarnar er rétt að athuga með aðrar stærðir. Með hverjum hnakk fylgir hlífðaryfirbreiðsla.

Leðrið sem notað er í Benni´s Harmony hnakkana er fyrsta flokks nautsleður. Með notkun nýjustu tækni ásamt yfir 100 ára gamalli hefð í sútun húðanna og annarri meðferð á hráefninu hjá framleiðanda verður til hágæðaleður með fallegri áferð og sérkennum.   Leðrið er litað skv. evrópskum stöðlum um umhverfisvernd og fást hnakkarnir í hefðbundnum svörtum lit, en einnig í sérstaklega fallegum dökkbrúnum lit.


EXTRA

Með lengri og örlítið breiðari hnakklöfum en Benni's Harmony Focus.



Frábær keppnishnakkur

  

Benni's Harmony Focus
hefur fínlegt yfirbragð og er sportlegur.
Hann fæst með tveimur sætislengdum: Medium (17") og small (16,5").
Extra-stórir hnépúðar, sérvalið gæðaleður, Stübben-fjaðurvirki og stærri undirdýnur.
Engir reiðakengur eða töskuhringir.
Tveir litir: Svartur og brúnn.

 

"Allround" er frekar djúpur en plássgóður með mjúkt sæti og býður knapanum þægilega öryggistilfinningu á öllum gangtegundum án þess þó að skorða hann. 

 

Allround RS er alveg eins og venjulegur Allround nema með dýnu. Extra mjúkur.

  

" Elegant" er með aðeins mjórra og heldur grynnra sæti, án þess þó að vera flatur. Hann er mjúkur og mjög nettur í útliti.

Elegant RS er alveg eins og venjulegur Elegant nema með dýnu. Extra mjúkur.

 

    
 

"Comfort II" er spaðahnakkur með sætisdýnu.  Hann er sérstaklega mjúkur fyrir knapann með passlega eftirgefanlegum spöðum sem dreifa þyngd knapans yfir stærri flöt en hinar týpurnar.  



Þú ert aldrei of ungur fyrir gæði

Elegant Junior er sérhannaður barnahnakkur, léttur og veitir barninu góðan stuðning
og þar með öryggi. Með riffluðu sæti og góðum hnépúðum, ásamt öryggisól á hnakknefi,
Stübben-fjaðurvirki og lítur vel út á hesti. Hnakkurinn er hugsaður sem fyrsti hnakkur,
frá byrjun upp í  ca. 11-12 ára aldur.
Litir: Brúnn og svartur