
Fáanleg á íslensku, ensku og þýsku
4.990 ikr + pökkun og
póstburðargjald
Ný
kennslubók í tamningu og þjálfun hesta
verður kynnt á LM2008. Hefur
hún fengið nafnið SAMSPIL.
Höfundur bókarinnar er Benedikt Líndal,
tamningameistari.
Í þessari bók leiða saman hesta sína
tveir afburðamenn, þeir Benedikt Líndal
tamningameistari og Friðþjófur
Helgason ljósmyndari. Þeir eiga að baki farsælt
samstarf enda hafa áður komið úr smiðju
þeirra kennslumyndirnar
Frumtamning og Þjálfun. SAMSPIL er lokakaflinn í
þeim þríleik. Hér er
á ferð einstök bók sem sameinar
fræðslu,
hugleiðingar og hreina upplifun.
Bókin SAMSPIL er um 150
síður. Hún er prýdd fjölda fallegra mynda
eftir
Friðþjóf Helgason, ljósmyndara.
Friðþjófur var einnig á bak við
kvikmyndavélina við gerð myndbandanna tveggja.
Það er bókaútgáfan Uppheimar á
Akranesi sem gefur bókina út.
Umsagnir um bókina:
„Í samstarfi
tveggja snjallra kunnáttumanna, hestamanns og
ljósmyndara, hefur hér orðið til sérlega
falleg bók. Í
Samspili finnum við margar einstaklega vel teknar
ljósmyndir, mikinn fróðleik og leiðbeiningar,
fjöldann allan
af góðum hugmyndum og einnig dæmisögur úr
margra áratuga reynslu tamningamanns í fremstu
röð. Höfundi
hefur tekist að búa til skemmtilega og spennandi
viðbót við kennslumyndirnar tvær sem á
undan eru gengnar og
að ljúka heildarverkinu með þessari bók sem
einkar fallegum og fróðlegum lokakafla.“
Pétur Behrens
„Ég hef þekkt Benedikt Líndal í
tuttugu og fimm ár. Hann ákvað snemma að nota
tímann vel og verja lífi sínu í að
þroskast, bæði sem hestamaður og persóna.
Það hefur honum tekist. Kennslumyndirnar Frumtamning og
Þjálfun,
og nú bókin Samspil, tala sínu máli og
þurfa ekki frekari vitna við. Verk sem bera höfundinum
fagurt vitni.
Tónninn í bókinni er líkur og í
myndunum. Ekki of fræðilegur, ekki
formlegur.
Lesandinn upplifir sig sem þátttakanda í spjalli
við vin og
kunningja, sem hefur góð ráð undir rifi hverju,
en er alls ekki að
þröngva sínum skoðunum upp á aðra.
Virðing Benna fyrir hestinum er rauður þráður
í gengum þessi þrjú verk.
Allt hans líf snýst um hesta og flest sem þeim
tengist. En það er
„samspil“ manns og hests sem alltaf situr í
fyrirrúmi. “
Jens Einarsson