Benni

Benedikt G.Líndal eða "Benni"er einn fjögurra reiðkenna á Íslandi með A-reiðkennararéttindi og meistarapróf í tamningum frá FT - Félagi Tamningamanna. Ferill hans sem atvinnumanns hófst eftir að hann útskrifaðst frá bændaskólanum á Hvanneyri 1973 og vann Morgunnblaðsskeifuna fyrir bestan árangur í tamningum þann vetur. Síðan þá hefur hann starfað við tamningar, þjálfun og reiðkennslu á Íslandi og ýmsum öðrum löndum, mest þó í Danmörku, Þýskalandi og Sviss


Valur frá Stokkhólma og Benni, EM í Danmörku 1977, fimmgangur


Styrmir frá Viðborðsseli og Benni, Evrópumeistarar í fimmgangi í Svíþjóð 1985

Hann hefur með góðum árangri tekið þátt í mörgum stærstu mótum sem haldin hafa verið fyrir íslenska hesta hérlendis og erlendis, s.s. Fjórðungs- og Landsmótum, Evrópumótum og Heimsmeistaramótum. Auk þess að hafa sjálfur tekið þátt, hefur hann verið þjálfari keppnisliða annarra þjóða sem stefnt hafa með þáttakendur á slík mót.


Svalur frá Þykkvabæ og Benni, sigurvegar í fimmgangi, Haustmót í Sviss 1995


Vinna með hest í hendi - Hersir frá Bessastöðum

Benni hefur um nokkurra ára skeið starfað sem reiðkennari við báða bændaskóla landsins og var yfirreiðkennari við Bændaskólann á Hólum veturinn 1996-97. Auk þess að hafa leitað í smiðju sér eldri íslenskra hestamanna hefur hann kynnt sér fjölbreyttar tamninga-og þjálfunaraðferðir ýmissa heimsfrægra erlendra tamningamanna. Þá þekkingu hefur hann heimfært eftir því sem við á á tamningu og þjálfun íslenska hestsins.

Við nemendur sína og þjálfun á hrossum hefur áherslan í auknum mæli beinst að velferð hestsins og skilningi á þörfum hans í samskiptunum við manninn.


Benni og Valsa frá Stað í íslenskum fjallasal

"Hestvænar" tamninga- og þjálfunaraðferðir sem og reiðtygi haldast í hendur og er hönnun Benni's Harmony reiðtygjanna lóð á þær vogarskálar.