Aukahlutir frá Benni's Harmony

Kryo Kompakt Horse-kæligel

 

Þetta gel hentar allstaðar þar sem langtíma kælimeðferð er til bóta.
Kryo-þerapíu-kæligelspokinn inniheldur mikrokristallaðan ís í parafínolíu og virkar jafnt og þétt í allt að 8 klst. frá því hann er settur á.

Engin hætta á ofkælingu eða frostskemmdum á vefjum.  Hentar vel sem fyrirbyggjandi meðferð v. álags á sinar, liðamót og vöðva, til að minnka
hættu á bólgum, bjúgsöfnun og verkjum.  Einnig gott að nota þar sem álagsmeiðsl eru til staðar og kæling er til bóta.

Hamanol-leðuráburður og sápa


Einstaklega góður áburður fyrir öll reiðtygi, skófatnað og annan leðurvarning.  Notist sparlega.




Stuttar neopren gjarðir

Höfuðleður með tilheyrandi reiðmúlum (fjórar tegundir)


Fyrir þá sem eru veikir fyrir góðu leðri vil ég endilega benda á höfuðleðrin frá okkur. Þau eru teiknuð af mér og búin til af sömu verksmiðju og hnakkarnir,
vandlega saumuð og vaxborin báðum megin. Mitt aðalbeisli er með Evrópu höfuðleður. Það er 5 ára og enn í toppformi þrátt fyrir mjög mikla notkun.
Sjá nánari upplýsingar undir takkanum "Höfuðleður" hér til hliðar.


Snúrumúlar


Original Benni´s Harmony snúrumúlar, framleiddir í Sviss. 
Hnýttir úr grönnu en níðsterku efni og henta höfuðstærð ísl. hesta vel.
Þeir passa sérstaklega vel ef maður notar þá eins og sýnt er á myndbandinu “Frumtamning”.
Taumar af réttri lengd og þyngd til að festa í múlana skipta ekki síður máli.

Benni's Harmony snúrumúll (margir litir) og svartur.
U.þ.b. 3,75 m langur, vinnutaumur úr sérhönnuðu efni.

Undirdýna

Ég hef aldrei verið mikið fyrir neinskonar “dýnudót”, en undanfarin ár hef ég notað
þessa undirdýnu að staðaldri og finnst hún frábær. Hún er sérsaumuð fyrir
Benni´s Harmony hnakkana og fer vel, það er auðvelt að festa hana við hnakkinn
og hún þvælist því ekkert fyrir manni. Kosturinn við svona hlífðardýnu er að hnakkurinn
er alltaf hreinn að neðan, salt og hár festast ekki í saumunum og þetta
auðveldar öll þrif á hnakknum auk þess sem líftími leðursins lengist. 
Þegar dýnan er orðin skítug, hendir maður henni einfaldlega í þvottavélina.
Litir: Blár (allir) og grænn (Comfort).


Ístaðsólar
Ístaðsólar eru mikilvægt öryggistæki. Benni´s Harmony er með ístaðsólar sem eru mjög þykkar en mjúkar framleiddar hjá Stübben.
Einnig hafa þær rúnnaða kanta en það skiptir máli ef maður hefur þær undir lafinu því þá renna þær mýkra yfir
hnépúðasauma og þar með er síður hætta á að þeir saumar rifni upp.